Nýr Hringvegur (1) um Hornafjörð var opnaður fyrir umferð í júní en gjaldtaka á nýja veginum hófst í september. Gjaldtakan hefur gengið vel en nú um mánaðamótin verða sendir fyrstu reikningarnir til eigenda þeirra ökutækja sem hafa ekið um veginn.

Nýr Hringvegur (1) um Hornafjörð var opnaður fyrir umferð í júní en gjaldtaka á nýja veginum hófst í september.
Langflestir vegfarendur hafa kosið að aka um nýjan Hringveg (1) um Hornafjörð eftir að gjaldtaka hófst þann 1. september þó hlutfall þeirra sem velja eldri leiðina um Hornafjarðarveg (987) hafi aukist aðeins. Á tímabilinu frá opnun nýja vegarins 25. júní og fram í ágúst, áður en gjaldtaka hófst, fór um 90% umferðar um nýja veginn en um 10% gömlu leiðina. Eftir að gjaldtaka hófst hefur hlutfallið breyst og að meðaltali fara um 79% ökutækja um nýja veginn en 21% gömlu leiðina. Það er nokkurn veginn í samræmi við það sem gert var ráð fyrir í undirbúningi gjaldtökunnar.
Veggjöldum er ætlað að standa undir hluta kostnaðar við framkvæmdina, rekstur og viðhald vegarins.
Veggjaldið var meðal annars ákveðið með hliðsjón af þeim ávinningi sem vegfarendur hafa af nýja veginum, svo sem styttri ferðatíma, lægri eldsneytis- og rekstrarkostnaði og betri akstursaðstæðum. Stakt gjald fyrir ökutæki undir 3,5 tonnum er 1.500 krónur, 2.100 krónur fyrir milli stóra bíla frá 3,5 til 7,5 tonna og 4.500 krónur fyrir bíla yfir 7,5 tonnum. Gjaldflokkur miðast við heildarþyngd ökutækja.
Innheimta veggjaldsins fer fram undir merkjum Spalar ehf. Markmiðið er að gera gjaldtökuna eins einfalda fyrir notendur og mögulegt er. Gjaldtakan er að fullu sjálfvirk og vegfarendur þurfa ekki að skrá sig eða greiða sérstaklega þegar ekið er um veginn. Myndavélar lesa skráningarnúmer ökutækja og upplýsingar eru sóttar í ökutækjaskrá. Reikningur fyrir ferðir hvers mánaðar er síðan sendur í heimabanka en reiknaður er afsláttur sem hækkar eftir því sem fleiri ferðir eru farnar. Einnig er hægt að greiða veggjaldið á vefnum spolur.is innan 24 tíma frá því ferð er farin en þá er ekki veittur afsláttur þar sem hann er reiknaður mánaðarlega. Margir hafa nýtt sér þann kost að greiða ferðir á spolur.is en 23% allra ferða sem farnar voru í september eru þegar greiddar. Meirihluti þeirra sem greiða á vefnum eru ferðamenn á bílaleigubílum.
Alls hafa 17.833 ökutæki farið 36.786 ferðir um veginn frá 1.-29. september sem gera tæplega 1.300 ferðir á dag að meðaltali. Hvert ökutæki hefur því farið að meðaltali rúmlega 2 ferðir á þessu tímabili.
Alls eru það um 5% ferða sem hafa farið farnar af ökutækjum sem hafa farið fleiri en 20 ferðir á þessu tímabili eins og sést á meðfylgjandi grafi.

Hlutfall stórra ökutækja er um 15% af heildarumferðinni,
Umferð um svæðið sveiflast töluvert eftir árstíðum. Til samanburðar var meðaltalsumferð að sumri, sumardagsumferð (SDU), um gömlu brúna árið 2025 um 2.500 ökutæki á sólarhring en vetrardagsumferð (VDU) um 750 ökutæki.
Afsláttarkjör eru veitt litlum og millistórum bílum og þak sett á mánaðarlegar greiðslur. Þannig er ekki greitt meira en 18.750 krónur á mánuði fyrir minnstu bílana og ekki meira en 26.250 krónur fyrir millistóra bíla. Þetta þýðir að gjald fyrir fólksbíl sem ekið er daglega til og frá vinnu er 417 kr. fyrir hverja ferð miðað við 45 ferðir á mánuði. Hámarksgjaldinu er náð við 22 ferðir á mánuði. Ekkert mánaðarlegt hámark er á greiðslum fyrir ökutæki yfir 7,5 tonnum.
Á spolur.is er hægt að nálgast yfirlit yfir eigin notkun sem og frekari upplýsingar um gjaldtökuna.
Með nýja veginum um Hornafjörð styttist Hringvegurinn um 12 kílómetra og leiðin frá Reykjavík til Hornafjarðar um rúma 14 km. Áætlað er að ferðatími styttist um 15 mínútur. Lagðir voru tæpir 19 km af nýjum Hringvegi, 9 km af öðrum vegum og byggðar fjórar tvíbreiðar brýr, sem eru samtals 468 m langar. Einnig var gerður áningarstaður og hringtorg við Hafnarveg.
Verkið er fyrsta samvinnuverkefnið sem Vegagerðin stendur að. Samkvæmt lögum um samvinnuverkefni er gert ráð fyrir að veggjöld standi straum af að lágmarki 50% af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri og þróun samgöngumannvirkisins. Heildarkostnaður við framkvæmdina í Hornafirði er áætlaður rúmlega 10 milljarðar króna.
Nánari upplýsingar um gjaldtökuna, gjaldskrá, svör við algengum spurningum og greiðslumöguleika má finna á spolur.is
Ökutæki undir 3,5 tonn | ||
Stök ferð | kr. á ferð | 1.500 |
2-5 ferðir í mánuði | kr. á ferð | 950 |
6-22 ferðir í mánuði | kr. á ferð | 750 |
Hámarksgjald á ökutæki | kr. á mánuði | 18.750 |
Ökutæki 3,5 til 7,5 tonn | ||
Stök ferð | kr. á ferð | 2.100 |
2-5 ferðir í mánuði | kr. á ferð | 1.330 |
6-22 ferðir í mánuði | kr. á ferð | 1.050 |
Hámarksgjald á ökutæki | kr. á mánuði | 26.250 |
Ökutæki yfir 7,5 tonn | ||
Stök ferð | kr. á ferð | 4.500 |
*Gert er ráð fyrir að gjaldskráin verði endurskoðuð reglulega. | ||