Dagskrá ráðstefnu Vegagerðarinnar Horfum fram á veginn liggur fyrir og skráning stendur yfir. Á ráðstefnunni verður sjónum beint að verkefnastýringu stórframkvæmda og viðhalds.
Ráðstefnan fer fram á Hótel Reykjavík Grand 15. apríl næstkomandi. Fjallað verður um eina stærstu áskorun í innviðauppbyggingu á Íslandi, hvernig Vegagerðin tekst á við innviðaskuld, skipulagningu, stýringu og forgangsröðun framkvæmda og viðhalds á skilvirkan og sjálfbæran hátt. Rætt verður um verkefnastýringu og hvernig Vegagerðin vinnur markvisst að því að bæta og auka hana til þess m.a. að tryggja að áætlanir standist sem best.
Dan Gardner, annar höfunda metsölubókarinnar How Big Things Get Done, verður aðalfyrirlesari á ráðstefnunni. Í erindi sínu, Getting Big Things Done On Budget And On Time, fjallar Gardner um það sem skiptir hvað mestu máli í stórum verkefnum; hvernig hægt er að skila þeim á réttum tíma og innan fjárhagsramma.
Meðal annarra fyrirlesara er Michael Ebbesen, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs hjá Vejdirektoratet, (dönsku Vegagerðinni). Hann greinir frá því hvernig danska Vegagerðin vann á mikilli uppsafnaðri innviðskuld með áhrifaríkum hætti.
