27. mars 2026
Fyrsta útboð­ið fyrir Sæbrautar­stokk

Vegagerðin hefur boðið út verkhönnun á undirbúningsframkvæmdum fyrir Sæbrautarstokk. Um er að ræða gerð verkhönnunargagna, meðal annars fyrir rif, aðstöðusköpun og hjáleiðir fyrir Sæbraut.

Fyrirhugað er að Sæbraut verði sett í stokk á um 1 km kafla.

Fyrirhugað er að Sæbraut verði sett í stokk á um 1 km kafla.

Frestur til að skila inn tilboðum er til kl. 14:00 þriðjudaginn 14. apríl 2026. Verki skal að fullu lokið 30. nóvember 2026. Útboðsgögn eru aðgengileg og eru afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign.

Um Sæbrautarstokk:

Fyrirhugað er að Sæbraut verði sett í stokk á um 1 km löngum kafla sem nær frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs.

Ný gatnamót við Kleppsmýrarveg/Skeiðarvog verða byggð ofan á norðurhluta stokksins með römpum að og frá Sæbraut til norðurs og suðurs. Í Sæbrautarstokk verða tvær akreinar í hvora átt auk blöndunarreina, að- og fráreina og neyðarvasa. Stoðveggir verða við enda stokksins og við rampana.

Eitt af markmiðunum er að bæta umhverfið í aðliggjandi byggð og tengja betur saman hverfi sem nú eru aðskilin af mikilli umferð.

Sæbrautarstokkur mun bæta samgöngur.

Sæbrautarstokkur mun bæta samgöngur.

Hér sést þversnið Sæbrautarstokks.

Hér sést þversnið Sæbrautarstokks.

Hvaða áhrif hefur Sæbrautarstokkur á höfuðborgarsvæðið?

  • Greiðari samgöngur fyrir akandi og aukið umferðaröryggi með frjálsu flæði yfir langan kafla Reykjanesbrautar (Sæbrautar) með afnámi gatnamóta við Súðarvog og mislægum gatnamótum við Kleppsmýrarveg.
  • Greiðari samgöngur fyrir gangandi og hjólandi og aukið umferðaröryggi með tengingum ofan á stokki milli borgarhluta austan og vestan megin við Sæbraut.
  • Greiðar samgöngur fyrir Borgarlínu og Strætó með mislægri þverun við Sæbraut á sérakreinum.
  • Hljóðvist og loftgæði eru bætt á löngum kafla.
  • Bættar tengingar almenningssamgangna sem og fyrir gangandi og hjólandi stuðla að auknu hlutfalli ferða vistvænna samgöngumáta sem er þáttur í að mæta loftlagsmarkmiðum stjórnvalda.
  • Meira pláss til uppbyggingar og borgarþróunar fjölgar jafnframt mögulegum notendum vistvænna samgangna.
  • Ofan á stokknum er gert ráð fyrir nýjum borgargarði með gróðri, göngu- og hjólastígum og góðri aðstöðu til útivistar og samveru.

Sæbrautarstokkur er ein af þeim stofnvegaframkvæmdum sem heyra undir Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

Gláma-Kím teiknaði meðfylgjandi myndir.

Svona gæti yfirborð stokksins litið út.

Svona gæti yfirborð stokksins litið út.

Dæmi um hvernig yfirborð stokksins gæti litið út.

Dæmi um hvernig yfirborð stokksins gæti litið út.