Vegagerðin ásamt Veitum ohf. óskar eftir tilboði í for- og verkhönnun á nýjum og endurgerðum gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar, ásamt hluta af þriðju lotu Borgarlínu, sem mun ná frá Stekkjarbakka að væntanlegri skiptistöð í Vogabyggð.

Gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar.
Til að skapa rými fyrir Borgarlínu og forðast inngrip á verndarsvæði Elliðaárdals er gert ráð fyrir að Reykjanesbraut verði hliðrað til vesturs á kafla við gatnamótin.
Þá er innifalið í verkinu for- og verkhönnun á breytingum lagna Veitna ohf. Um er að ræða fráveitu, hitaveitu og rafveitu.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 20. apríl 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. maí 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þriðjudaginn 2. júní 2026 verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar.

Gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar.

Yfirlitsmynd.