Útboðsnúmer 26-110
Reykja­nesbraut (41), gatna­mót Reykja­nesbrautar og Bústaða­vegar og hluti 3. lotu Borgar­línu, hönn­un

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst júlí 2026
    • 2Opnun tilboða ágúst 2026
    • 3Samningum lokið

3. júlí 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin og Veitur ohf. óska eftir tilboði í for- og verkhönnun á endurgerð gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðavegar auk hönnunar á legu Borgarlínu frá Stekkjarbakka A-V að væntanlegri skiptistöð Borgarlínu í Vogabyggð sem staðsett verður við Súðarvog. Á leiðinni verða tvær nýjar brýr undir Vesturlandsveg við vestari kvísl Elliðaár, tvenn núverandi undirgöng sem þarf að lengja og ný brú fyrir rampa á gatnamótum við Bústaðaveg. Reykjanesbraut þarf að hliðfæra til vesturs á kafla til að forðast inngrip á verndarsvæði Elliðaárdals.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 3. júlí 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 20. ágúst 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Fimmtudaginn 3. september 2026 verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.


20. ágúst 2026Opnun tilboða

Eftirtaldi aðilar lögðu fram tilboð innan tilboðsfrests:

Efla hf., Reykjavík

exa nordic ehf., Reykjavík

Hnit verkfræðistofa hf., Reykjavík

Verkís hf., Reykjavík

VSÓ Ráðgjöf ehf, Reykjavík

Fimmtudaginn 3. september 2026 verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.