25. júní 2026
Fjöl­menni við opnun nýs Hring­vegar (1) um Horna­fjörð

Fjölmenni var saman komið á brúnni yfir Hornafjarðarfljót þegar nýr Hringvegur (1) um Hornafjörð var opnaður fyrir umferð við hátíðlega athöfn.“Það er einstök ánægja að geta í dag opnað umferð um þennan nýja kafla Hringvegar um Hornafjörð. Í dag styttist Hringvegurinn um 12 kílómetra en svo mikið hefur hann ekki styst frá því Hvalfjarðargöngin voru tekin í notkun árið 1998. Það munar um minna. Kvennakór Hornafjarðar söng við vígsluna en kórinn hefur sungið á öllum einbreiðum brúm sýslunnar í baráttunni fyrir nýjum tvíbreiðum. Skærin sem ráðherra mundaði voru sömu skæri og notuð voru við opnum gömlu brúarinnar 1961 og Ford vörubílinn sem fór fyrstur yfir með ráðherra var þá einnig notaður í vegagerðinni fyrir 65 árum síðan.

Það voru Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar, Ragnar Þór Ingólfsson starfandi innviðaráðherra og Gauti Árnason forseti bæjarráðs Hornafjarðar sem klipptu á borða til að opna veginn fyrir umferð. Nú geta því heimamenn og landsmenn allir nýtt sér styttinguna. Skærin sem ráðherra notaði eigar sér langa sögu, Bergþóra rakti þá sögu í ávarpi sínu: “

Þegar brúin yfir Hornafjörð var vígð árið 1961 kom babb í bátinn því gleymst hafði að taka með skæri til að klippa á borða. Þá leitaði Þrúðmar Sigurðsson í Hoffelli til viðstaddra um hvort einhver væri með skæri á sér. Það vildi svo til að þá eins og í dag sáu kvenfélagskonur í sveitinni um veitingarnar og ein félagskona, Sigurborg Gísladóttir frá Brunnum, var með saumaskærin sín meðferðis sem síðan fengu þetta mikilvæga verkefni. Skærin hafa síðan varðveist í fjölskyldu hennar og þessi saga fylgt þeim alla tíð.

Þegar okkur buðust skærin til borðaklippingarinnar gripum við það fegins hendi en líklega eru fá skæri sem hafa tvívegis fengið svo glæsilegt verkefni.“

Ráðherra fagnaði þessu mikla verki og leit einnig til framtíðar: “

Þegar við horfum hér yfir og erum um það bil að taka þessa nýju leið í notkun er mikilvægt að hafa hugfast að hér er um að ræða meira en bara röð malbiks og steypu. Það sem við vígjum hér í dag er jafnframt tákn um framfarir, samstöðu og framtíðarsýn. Þetta er dæmi um það sem við getum gert þegar við vinnum saman, ríkisvaldið, sveitarfélög, verktakar og samfélagið allt.

Í dag fögnum við áfanga sem hefur lengi verið beðið eftir. En við lítum líka fram á veginn. Verkefnin eru mörg, þörfin er mikil en nú höfum við ný verkfæri til að takast á við þau. Alþingi samþykkti nýverið samgönguáætlun þar sem áform eru uppi um umfangsmiklar samgöngubætur víðsvegar um land. Ríkisstjórnin er staðráðin í því að fjárfesta í innviðum landsins, í vegakerfinu, með það að markmiði að efla öryggi fólks og atvinnutækifæri.“

Að vanda við opnanir á vegum, brúm eða göngum standa tveir Vegagerðarmenn sem heiðursmenn og aðstoða skæravörð sem iðulega kemur af staðnum og er í yngri kantinum. Það var hún Klara Björt Þorsteinsdóttir sem sinnti því hlutverki en heiðursmenn voru afi hennar Þorleifur Olsen og Jón Kristófer Guðbjörnsson, báðir starfsmenn þjónustustöðvarinnar á Höfn og reyndar Gauti Árnason líka.

Það var síðan Ragnar Þór sem settist upp í vörubifreið árgerð 1956 við hlið Reynis Gunnarssonar sem ók, en hann var þjónustustjóri hjá Vegagerðinni í áratugi. Bergþóra minntist á það að einmitt þessi vörubíll Ford Köln árgerð 1956 hafði verið notaður við vegagerðina og brúarsmíði gömlu brúarinnar yfir Hornafjarðarfljót sem var opnuð 1961.

Leiðin lá að félagsheimilinu í Holti þar sem Ingibjörg Sveinsdóttir forseti bæjarstjórnar stýrði fundi og veitingum. Axel Viðar Hilmarsson verkefnisstjóri þessa stóra verkefnis fyrir hönd Vegagerðarinnar fór yfir forsöguna og það sem í verkinu fólst. Sjá einnig frétt um verkið. Karl Andreassen forstjóri Ístaks sem vann þennan síðasta hluta verksins tók einnig til máls, hann benti á að ýmislegt hefði gengið á í verkinu sérstaklega veðurfarslega en verkið væri gott og Ístaks menn væru ákaflega stoltir af því, hann óskaði heimamönnum og landsmönnum öllum til hamingju með nýja veginn og brýrnar fjórar.

 

Ragnar Þór Ingólfsson, Bergþóra Þorkelsdóttir, heiðursmenn Þorleifur Olsen og Jón Kristófer Guðbjörnsson auk skæravarðarins Klöru Bjartar Þorseinsdóttur.

Ragnar Þór Ingólfsson, Bergþóra Þorkelsdóttir, heiðursmenn Þorleifur Olsen og Jón Kristófer Guðbjörnsson auk skæravarðarins Klöru Bjartar Þorseinsdóttur.

Gauti Árnason, Ragnar Þór Ingólfsson og Bergþóra Árnadóttir klipptu á borðann.

Gauti Árnason, Ragnar Þór Ingólfsson og Bergþóra Árnadóttir klipptu á borðann.

Ragnar Þór Ingólfsson og Bergþóra Þorkelsdóttir

Ragnar Þór Ingólfsson og Bergþóra Þorkelsdóttir

Kvennakór Hornafjarðar

Kvennakór Hornafjarðar

Ragnar Þór Ingólfsson

Ragnar Þór Ingólfsson

Bergþóra Þorkelsdóttir

Bergþóra Þorkelsdóttir

Frá vígslunni á brúnni

Frá vígslunni á brúnni

Þorleifur Olsen, Klara Björt Þorsteinsdóttir, Jón Kristófer Guðbjörnsson

Þorleifur Olsen, Klara Björt Þorsteinsdóttir, Jón Kristófer Guðbjörnsson

Ráðherra, heiðursmenn og skæravörður

Ráðherra, heiðursmenn og skæravörður

Allt klárt til klippingar

Allt klárt til klippingar

Gestir fagna því að búið er að opna veginn um Hornafjörð

Gestir fagna því að búið er að opna veginn um Hornafjörð

Gauti Árnason, Ragnar Þór Ingólfsson og Bergþóra Þorkelsdóttir

Gauti Árnason, Ragnar Þór Ingólfsson og Bergþóra Þorkelsdóttir

Reynir Gunnarsson fyrrverandi þjónustustjóri Vegagerðarinnar á Höfn

Reynir Gunnarsson fyrrverandi þjónustustjóri Vegagerðarinnar á Höfn

Rætt við Karl Andreassen forstjóra Ístaks

Rætt við Karl Andreassen forstjóra Ístaks

Ráðherra ekur fyrstur yfir brúna á Ford Köln 1956, bílstjóri Reynir Gunnarsson

Ráðherra ekur fyrstur yfir brúna á Ford Köln 1956, bílstjóri Reynir Gunnarsson

Gauti Árnason

Gauti Árnason

Ingibjörg Sveinsdóttir forseti Bæjarstjórnar stýrði fundi

Ingibjörg Sveinsdóttir forseti Bæjarstjórnar stýrði fundi

Vígslugestir flykktust í félagsheimilið að Holti

Vígslugestir flykktust í félagsheimilið að Holti

Karl Andreassen forstjóri Ístaks var stoltur af sínum mönnum og framkvæmdinni

Karl Andreassen forstjóri Ístaks var stoltur af sínum mönnum og framkvæmdinni

Axel Viðar Hilmarsson verkefnisstjóri verksins sagði frá því og framkvæmdinni

Axel Viðar Hilmarsson verkefnisstjóri verksins sagði frá því og framkvæmdinni