16. júní 2026
Nýr Hring­vegur (1) um Horna­fjörð opnaður 24. júní

Nýr Hringvegur (1) um Hornafjörð verður opnaður formlega miðvikudaginn 24. júní 2026 klukkan 15:00. Vígslan fer fram á nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót. Að henni lokinni er boðið til kaffisamsætis í félagsheimilinu Holti á Mýrum þar sem öll eru velkomin.

Ný brú yfir Hoffellsá er ein af þremur nýjum brúm á leiðinni.

Ný brú yfir Hoffellsá er ein af þremur nýjum brúm á leiðinni.

Hringvegurinn styttist um 12 km með opnun nýja vegarins en leiðin til Hafnar styttist enn meira eða um 14,6 km. Framkvæmdin var afar umfangsmikil en lagðir voru tæpir 19 km af nýjum Hringvegi, 9 km af öðrum vegum og byggðar fjórar tvíbreiðar brýr, sem eru samtals 468 m langar. Einnig var gerður áningarstaður og hringtorg við Hafnarveg.

Aðdragandi verksins var langur en fyrstu áætlanir voru lagðar fram árið 2004. Fyrsti áfangi var boðinn út 2017 og fólst í gerð 5 km langrar vegfyllingar. Annar áfangi var boðinn út 2021 en öllum tilboðum hafnað. Árið 2022 var verkið boðið út að nýju sem samvinnuverkefni með framkvæmd og framkvæmdafjármögnun. Tilboð voru opnuð 17. maí 2022 og samið við Ístak 14. júlí 2022. Framkvæmdir hófust þá um haustið.

Helstu verkhlutar

  • Þjóðvegir (C8), alls um 18,5 km
  • Tengivegir (C7), alls um 4,4 km
  • Hliðarvegir (D), alls um 4,4 km
  • Brú yfir Djúpá, 52 m
  • Brú yfir Hornafjarðarfljót, 250 m
  • Brú yfir Hoffellsá, 114 m
  • Brú yfir Bergá, 52 m
  • Hringtorg sem tengir Hringveg við Hafnarveg og Nesjahverfi
  • Áningarstaður við Brunnhól.
Nýja brúin yfir Hornafjarðarfljót.

Nýja brúin yfir Hornafjarðarfljót.

Nýtt hringtorg tengir nýja Hringveginn við Hafnarveg.

Nýtt hringtorg tengir nýja Hringveginn við Hafnarveg.

Opnunarathöfn við nýja brú yfir Hornafjarðarfljót

Nýi vegkaflinn verður opnaður formlega með borðaklippingu miðvikudaginn 24. júní klukkan 15:00. Athöfnin fer fram á nýju brúnni yfir Hornafjarðarfljót. Gestir geta ekið að vígslustað frá Djúpárvegi að vestan en eftir nýja veginum frá hringtorginu við Höfn. Vegurinn verður opnaður fyrir almennri umferð að vígslu lokinni. Öllum er velkomið að fylgjast með athöfninni og mæta í kaffisamsæti sem haldið verður í félagsheimilinu Holti á Mýrum.

Kvennakór Hornafjarðar mun syngja bæði við vígslu og í kaffisamsætinu. Kórinn komst í sviðsljósið árið 2020 þegar hann söng á öllum einbreiðum brúm í Austur-Skaftafellssýslu til að vekja athygli á þörfinni á að skipta þeim út fyrir nýjar tvíbreiðar brýr.

 

Veggjald frá 1. september 2026

Tekið verður veggjald til að standa undir fjármögnun framkvæmdarinnar í samræmi við lög um samvinnuverkefni en Hringvegur (1) um Hornafjörð er fyrsta samvinnuverkefnið sem Vegagerðin stendur að.

Heildarkostnaður vegna framkvæmdarinnar í Hornafirði er áætlaður rúmlega 10 milljarðar króna. Lögin gera ráð fyrir að innheimta veggjalda geti staðið straum af að lágmarki 50% af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri og þróun samgöngumannvirkisins Gjaldtaka skal ekki standa lengur en í 30 ár.

Ákveðið hefur verið að hefja ekki gjaldtöku fyrr en 1. september í ár.

Fyrirkomulag gjaldtöku

Markmiðið er að gera gjaldtökuna eins einfalda fyrir notendur og mögulegt er. Gjaldtakan verður fullkomlega sjálfvirk og vegfarendur þurfa ekki að skrá sig eða borga á þeim tíma sem ekið er um veginn. Sjálfvirk myndavélagreining verður á bílnúmerum sem flettir upp í ökutækjaskrá. Reikningur er síðan sendur í heimabanka um hver mánaðamót. Sett verður upp vefsíðan www.spolur.is þar sem hægt verður að nálgast yfirlit yfir notkun og svör við algengustu spurningum. Síðan er í vinnslu og verður tilbúin í sumar.

Gjaldskrá

Veggjaldið var meðal annars ákveðið út frá því hversu mikið fólk er tilbúið að greiða fyrir þann ávinning sem fæst  með til dæmis styttri ferðatíma, lægri eldsneytis- og rekstrarkostnaði og betri akstursaðstæðum.

Hringvegurinn styttist um 12 km en vegarkaflinn frá Mýrum að hringtorgi við Hafnarveg styttist enn meir. Sá kafli er í dag 28,3 km en verður um 13,7 km með nýjum vegi og styttist því um 14,6 km. Því má gera ráð fyrir að vegfarendur verði um 15 til 20 mínútum fljótari að aka þessa leið.

Stakt gjald fyrir ökutæki undir 3,5 tonnum verður 1.500 krónur, 2.100 krónur fyrir millistóra bíla frá 3,5 til 7,5 tonnum og 4.500 krónur fyrir bíla yfir 7,5 tonnum. Afsláttarkjör verða fyrir litla og millistóra bíla og þak sett á mánaðarlegar greiðslur. Þannig er ekki greitt meira  en 18.750 krónur á mánuði fyrir minnstu bílana og ekki meira en 26.250 krónur fyrir millistóra bílar. Hámarksgjaldinu er náð við 22 ferðir á mánuði. Ekki er þak á greiðslum stærstu bílana.

Gert er ráð fyrir að gjaldskráin verði endurskoðuð reglulega.

Gjaldskrá
Ökutæki undir 3,5 tonn
Stök ferð
kr. á ferð
1.500
2-5 ferðir í mánuði
kr. á ferð
950
6-15 ferðir í mánuði
kr. á ferð
750
Hámarksgjald á ökutæki
kr. á mánuði
18.750
Ökutæki 3,5 til 7,5 tonn
Stök ferð
kr. á ferð
2.100
2-5 ferðir í mánuði
kr. á ferð
1.330
6-15 ferðir í mánuði
kr. á ferð
1.050
Hámarksgjald á ökutæki
kr. á mánuði
26.250
Ökutæki yfir 7,5 tonn
Stök ferð
kr. á ferð
4.500