29. september 2026
Brú yfir Dimmu form­lega opnuð

Ný göngu- og hjólabrú yfir Dimmu var opnuð með pompi og prakt í gær. Fulltrúar Vegagerðarinnar, Betri samgangna og Reykjavíkurborgar klipptu á borða en kátir nemendur úr fjórða bekk í Árbæjarskóla voru heiðursgestir.

Margrét Rós Sigurjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, Bryndís Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar og Katrín Halldórsdóttir, forstöðumaður hjóla- og göngustíga hjá Betri samgöngum klipptu á borðann.

„Nýja brúin er mikilvæg samgöngubót fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og tengir vel saman stígakerfið á svæðinu. Hún leysir af hólmi gamlan veitustokk sem um árabil nýttur sem göngubrú en var kominn til ára sinna,“ segir Bryndís Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar.

Við hönnun brúarinnar var sérstaklega tekið mið af þeim sem nýta Elliðaárdalinn til útivistar, göngu, hjólreiða og afþreyingar, en einnig þeirra sem stunda veiði í ánni.  Brúin er gerð úr límtré sú lengsta sem byggð hefur verið hér á Íslandi með þeim hætti. Hún er 46 metra löng, 6 metra breið og framleidd í verksmiðju Moelven í Noregi.

Vel er vandað til við smíði brúarinnar, burðarbitar eru fúavarðir og ytra byrði klætt með áli til að verja fyrir niðurbroti sólarljóss, ofan á brúargólfinu er vatnsþéttilag og þar ofan á malbiksslitlag. Samkvæmt framleiðandanum á brúin að geta staðið í að  minnsta kosti í 100 ár.

Brúin yfir Dimmu er hluti af framkvæmdum sem heyra undir nýjan Arnarnesveg og eru hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þar sem lögð er áhersla á að bæta innviði fyrir fjölbreytta ferðamáta og skapa öruggari leiðir um höfuðborgarsvæðið.

Heitið Dimma nær yfir hluta Elliðaánna, frá Elliðavatni að bugðunni við Grænugróf.

Hönnun: Verkís og Úti Inni arkitektar
Framkvæmd: Suðurverk og Loftorka
Eftirlit: VSB

Axel einhjólari frá Sirkus Íslandi lék listir sínar.

Axel einhjólari frá Sirkus Íslandi lék listir sínar.

Krakkar úr Árbæjarskóla voru heiðursgestir.

Krakkar úr Árbæjarskóla voru heiðursgestir.

Brúin er glæsileg.

Brúin er glæsileg.

Brúin er sú lengsta sinnar tegundar á landinu.

Brúin er sú lengsta sinnar tegundar á landinu.