12. maí 2026
Boga­brú á Djúpa­fjörð senn í útboð

Vegaframkvæmdir á sunnanverðum Vestfjörðum eru komnar á góðan rekspöl. Nokkrum lykilverkefnum er lokið og önnur langt komin. Stefnt er á að bjóða út byggingu 210 m langrar netbogabrúar á Djúpafirði í næstu viku.

Frá Djúpafirði. Myndin er tekin í mars.

Frá Djúpafirði. Myndin er tekin í mars.

Undirbúningur fyrir smíði bogabrúar yfir Djúpafjörð hefur staðið yfir um langt skeið, enda um vandasamt verkefni að ræða. Brúin verður af sambærilegri gerð og brýrnar yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi og Eldvatn í Skaftártungu, nema hún verður bæði lengri og hærri en þær, eða 210 m löng og 25 m á hæð. Brúin verður 8 m yfir sjávarmáli og því verður hægt að sigla undir hana. 

Sérstaða brúarinnar felst í því að hún verður í einu hafi, án millistöpla, yfir sjó þar sem mikill munur er á flóði og fjöru og sterkir sjávarstraumar algengir.  

Nokkrir möguleikar eru við byggingu brúar yfir sjó. Brúin hefur verið hönnuð þannig að með styrkingum er hægt að draga eða ýta út stálvirkinu í heilu lagi yfir brúarstæðið. Það væri þá gert með bráðabirgðaundirstöðum á 70 m bili eða nota pramma, sem hægt er að færa til, sem undirstöðu. Stálvirkið er þá smíðað í hlutum, flutt og sett saman á verkstað.  

Aðrar aðferðir hafa einnig verið notaðar, eins og hreinlega að flytja brúna (stálvirkið) í heilu lagi á pramma frá verksmiðju að verkstað og setja á stöpla af prammanum.  Eftir að brúin er komin á sinn stað þá er komið að brúargólfinu, fyrst með forsteyptum einingum og síðan útlagðri steypu sem yfirborð og hluta af burði brúarinnar. 

Áætlað er að brúin ásamt vegtengingum frá Hallsteinsnesi yfir í Skálanes verði tilbúin í lok árs 2028.  

Ljósmynd: Haukur Sigurðsson

Hér sést hvernig brúin gæti litið út.

Hér sést hvernig brúin gæti litið út.

Tölvuteikning af fyrirhugaðri brú.

Tölvuteikning af fyrirhugaðri brú.