10. júní 2026
Baldur gegn­ir hlut­verki vara­skips fyrir Vest­manna­eyjar

Ríkið styrkir rekstur Breiðafjarðarferjunnar Baldurs yfir vetrartímann til að bæta samgöngur fyrir íbúa og atvinnulíf á Vestfjörðum þegar vetrarfærð er erfið. Yfir sumartímann er reksturinn hins vegar á ábyrgð rekstraraðila og fer fram á markaðslegum forsendum. Flutningsaðilar nýta ferjuna í sífellt minna mæli og flutningar yfir sumartímann eru hverfandi.

Baldur á siglingu.

Baldur á siglingu.

Samkvæmt útboðsskilmálum fyrir rekstur Breiðafjarðarferjunnar Baldurs er skipið rekið á þeim forsendum að það geti gegnt hlutverki varaskips fyrir Herjólf þegar þörf krefur.

Þegar Baldur fer tímabundið úr siglingum á Breiðafirði er jafnframt gert ráð fyrir að afleysingaskip sinni nauðsynlegri þjónustu við Flatey.

Særún siglir til Flateyjar

Nú í júní mun báturinn Særún annast siglingar til Flateyjar á meðan Baldur sinnir verkefnum í Vestmannaeyjum. Særún hefur áður gegnt þessu hlutverki og mun flytja farþega, vörur, neysluvatn og annan nauðsynlegan farm til eyjarinnar. Einnig hefur verið komið fyrir búnaði sem gerir kleift að sinna vöruflutningum til og frá Flatey.

Særún hefur leyfi til að flytja 115 farþega. Lausir tankar eru um borð og því hægt að flytja 6-7 tonn af vatni í hverri ferð til að leysa vatnsbúskapinn á eyjunni, en áætluð vatnsnotkun í Flatey er um 7-8 tonn á dag.

Vegagerðin gerir sér grein fyrir að það veldur óþægindum þegar Baldur þarf að hverfa tímabundið úr siglingum á Breiðafirði sér í lagi ef það er gert með stuttum fyrirvara. Með afleysingaþjónustu við Flatey er leitast við að lágmarka áhrifin á íbúa og atvinnulíf á svæðinu.

Færri flutningabílar nýta ferjuna

Umræða hefur verið um áhrif fjarveru Baldurs á flutninga um Breiðafjörð.  Notkun á Baldri yfir vetrartímann hefur sveiflast mjög eftir veðurfari og færð og ástandi vega.

Tölur um nýtingu ferjunnar sýna að notkun hennar fyrir flutningabíla hefur dregist verulega saman á síðustu árum. Yfir vetrartímann hefur meðalfjöldi flutningabíla í hverri ferð farið úr 4–5 bílum niður í innan við einn bíl í ferð. Yfir sumartímann er nýtingin enn minni og að jafnaði innan við 0,1– 0,2 flutningabílar að meðaltali í hverri ferð.

Samdrátturinn skýrist meðal annars af bættum vegasamgöngum á sunnanverðum Vestfjörðum og hins vegar af veðurfari. Opnun Þorskafjarðarbrúar og nýs vegar um Teigsskóg árið 2023 hefur stytt leiðir og bætt akstursskilyrði, þannig að fleiri flutningabílar velja núa að fara landleiðina.

Særún siglir til Flateyjar í júní.

Særún siglir til Flateyjar í júní.