Véla­maður á Patreks­firði

  • StarfssvæðiVesturland
  • Tegund starfsIðnstörf
  • Starfshlutfall100%
  • Umsóknarfrestur11. ágúst 2025

Vegagerðin auglýsir laust starf vélamanns á þjónustustöðinni á Patreksfirði.  

Vélamenn vinna á opnunartíma þjónustustöðvar en eru þar að auki á bakvöktum utan dagvinnutíma frá október-apríl alla daga vikunnar, til að sinna vetrarþjónustu.  

Helstu verkefni

Vélamenn sinna almennri daglegri þjónustu á vegakerfinu á starfssvæði þjónustustöðvarinnar á Patreksfirði. Meðal verka er viðhald á vegstikum, umferðamerkjum og öðrum vegbúnaði ásamt annarri vinnu í starfsstöð.   


Hæfniskröfur

  • Almenn ökuréttindi skilyrði 
  • Vinnuvélaréttindi æskilegt  
  • Meirapróf æskilegt  
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg  
  • Góð öryggisvitund  
  • Hæfni í mannlegum samskiptum  
  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp  
  • Gott vald á íslensku  
  • Almenn tölvukunnátta  

Frekar upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkalýðsfélag Vestfirðinga hafa gert.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru.  

Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir. Mynd af ökuskírteini/ vinnuvélaréttindum þarf að fylgja umsókn.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.  

Bríet Arnardóttir
Bríet Arnardóttir

briet.arnardottir
@vegagerdin.is