Starfs­maður á þjón­ustu­stöð á Hólma­vík

  • StarfssvæðiVesturland
  • Tegund starfsIðnstörf
  • Starfshlutfall100%
  • Umsóknarfrestur10. nóvember 2025

Vegagerðin óskar eftir jákvæðum og áreiðanlegum starfsmanni til starfa á þjónustustöð á Hólmavík.

Starfsfólk þjónustustöðvar sinnir almennri daglegri þjónustu og viðhaldi á vegakerfinu á starfssvæði þjónustustöðvarinnar. Unnið er á opnunartíma þjónustustöðvar en starfsfólk sinnir jafnframt bakvöktum utan dagvinnutíma frá október-apríl alla daga vikunnar, vegna eftirlits með færð og vetrarþjónustu.

Helstu verkefni

  • Almenn dagleg þjónusta og viðhald á vegakerfinu á starfssvæði þjónustustöðvarinnar
  • Eftirlit með færð á vegum og upplýsingagjöf um ástand vega
  • Vinna við uppsetningu og viðhald umferðarmerkja, vegvísa, stika og vegriða
  • Holuviðgerðir og hreinsun ristahliða 
  • Ýmis vinna í þjónustustöð

Hæfniskröfur

  • Almenn ökuréttindi skilyrði
  • Vinnuvélaréttindi æskileg  
  • Meirapróf æskilegt 
  • Góð öryggisvitund 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp 
  • Gott vald á íslensku 
  • Almenn tölvukunnátta 

Frekar upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkalýðsfélag Vestfirðinga hafa gert.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið. 

Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir. Afrit af ökuréttindum þarf að fylgja umsókn. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 

Nánari upplýsingar veitir

Gunnar Númi Hjartarson
Gunnar Númi Hjartarson

gunnar.n.hjartarson
@vegagerdin.is