Sérfræð­ingur í hönn­unar­stjórn jarðganga

  • StarfssvæðiÓstaðbundið
  • Tegund starfsSérfræðistörf
  • Starfshlutfall100%
  • Umsóknarfrestur31. ágúst 2026

Laust er til umsóknar starf sérfræðings í hönnun og hönnunarstjórn jarðganga á hönnunardeild Vegagerðarinnar.  

Á vegakerfi Íslands eru 13 jarðgöng, samtals 64,8 km., staðsett víðsvegar um landið. 
Á hönnunardeild vinna um 15 sérfræðingar við verkefnis- og hönnunarstjórnun, hönnun vega, jarðganga og brúa, mat á umhverfisáhrifum, vatnafarsgreiningar ásamt gerð kostnaðaráætlana, verk- og útboðslýsinga. Starfsstöðvar eru á Akureyri og í Garðabæ.

Helstu verkefni

  • Stýring hönnunar nýrra jarðganga, aðstoð við áætlanagerð, undirbúning og framkvæmd jarðgangaverkefna.
  • Ráðgjöf varðandi viðhaldsaðgerðir í jarðgöngum. 
  • Felur í sér að sinna stórum verkefnum á höfuðborgarsvæðinu.
  • Starfið felur í sér hvorttveggja hönnunarstýringu jarðganga á landsbyggðinni og stokkalausnum í þéttbýli.

Hæfniskröfur

  • Verk- eða tæknifræðingur eða önnur menntun sem nýtist í starfi. Meistarapróf æskilegt.
  • Reynsla af hönnun  eða hönnunarstjórn samgöngumannvirkja eða jarðganga æskileg.
  • Leiðtogafærni og nýsköpunarhugsun.
  • Framúrskarandi samskiptafærni og lausnamiðuð nálgun. 
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu.
  • Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni. 
  • Öryggisvitund.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli, kunnátta í norðurlandamáli kostur.
     

Frekar upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkfræðingafélag Íslands hafa gert.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. 

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið

Nánari upplýsingar veitir

Einar Helgason
forstöðumaður hönnunardeildar

einar.helgason
@vegagerdin.is