Sérfræð­ingur í fjár­mála­grein­ingum

  • StarfssvæðiHöfuðborgarsvæðið
  • Tegund starfsSkrifstofustörf
  • Starfshlutfall100%
  • Umsóknarfrestur27. október 2025

Vegagerðin er stærsta framkvæmdastofnun landsins og sinnir fjölbreyttum verkefnum sem tengjast viðhaldi og rekstri samgöngukerfisins. Fjármáladeild er m.a. ábyrg fyrir upplýsingagjöf um fjárhag og rekstur Vegagerðarinnar og gerð fjárhagsáætlana í samræmi við áherslur hverju sinni.

Við leitum að metnaðarfullum og nákvæmum einstaklingi í starf sérfræðings í teymi fjármálagreininga á fjármáladeild. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni

  • Þátttaka í greiningu og úrvinnslu fjármálaupplýsinga til að styðja ákvarðanatöku innan stofnunarinnar
  • Aðstoð við fjárhagslega greiningu einstakra verkefna
  • Mat á áhrifum breytinga á rekstrarumhverfi, samninga og fjármögnun
  • Miðlun upplýsinga og samantektir fyrir stjórnendur
  • Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum á fjármáladeild 

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á opinberum fjármálum og lögum um opinber fjármál 
  • Þekking og reynsla af fjárhagskerfi ORRA
  • Hæfni til að þróa og viðhalda reiknilíkönum 
  • Hæfni til að setja gögn og upplýsingar fram á skýran og greinargóðan hátt
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt 
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli 

Frekar upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. 

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Möller
Sigurður Möller

sigurdur.moller
@vegagerdin.is