Veghelgunarsvæði ná 30 m frá miðlínu stofnvega og 15 m frá miðlínu annarra þjóðvega, sbr. 32. gr. vegalaga. Innan þeirra þarf leyfi Vegagerðarinnar fyrir mannvirkjum. Svæðin á kortinu eru reiknuð út frá innmældri miðlínu, sýna ekki vegamót og eru eingöngu til viðmiðunar.
Í 32. gr. vegalaga nr. 80/2007 er kveðið á um fjarlægð mannvirkja frá vegi (https://www.althingi.is/lagas/nuna/2007080.html).
„Byggingar, leiðslur, auglýsingaspjöld, skurði eða önnur mannvirki, föst eða laus, má ekki staðsetja nær vegi en 30 m frá miðlínu stofnvega og 15 m frá miðlínu annarra þjóðvega nema leyfi veghaldara komi til.
Óheimilt er að reisa mannvirki nema með leyfi veghaldara við vegamót vega skv. 1. mgr. á svæði sem takmarkast af beinum línum milli punkta á miðlínu vega 40 m frá skurðpunkti þeirra. Veghaldari getur ef sérstaklega stendur á fært út mörk þessi, allt að 150 m.
Veghaldari getur ákveðið að fjarlægð mannvirkja frá vegi skv. 1. mgr. skuli aukin. Enn fremur getur veghaldari leyft að fjarlægð verði minnkuð á tilteknum köflum ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi.“
Í þessari þjónustu eru veghelgunarsvæði sem eru reiknuð út frá 30 m frá miðlínu stofnvega og 15 m frá miðlínu annarra þjóðvega eins og þær eru innmældar hjá Vegagerðinni. Ekki eru teiknuð sérstaklega upp veghelgunarsvæði við vegamót. Þetta eru ekki nákvæm mörk og skal hafa þau eingöngu til viðmiðunar.