PDF
Raun­hraða­breyt­ingar með lækk­un hámarks­hraða – TomTom grein­ing

Sumarið 2021 hóf Reykjavíkurborg lækkun hámarkshraða á fjölmörgum götum úr 50 km/klst í 40 km/klst og 30km/klst., að mestu með breytingu á umferðarskiltum. Til að meta áhrifin var stuðst við gögn frá TomTom fyrir (2022) og eftir breytingar (2024) og einungis horft til gatna þar sem hraði fór úr 50 km/klst. í 40 km/klst. Niðurstöðurnar sýna að breytingarnar höfðu takmörkuð áhrif á umferðarhraða; meðalhraðinn lækkaði að jafnaði um 0,46 km/klst. Raunhraði á flestum götum í Reykjavík var þegar vel undir 50 km/klst. áður en breytingarnar voru gerðar sem getur skýrt niðurstöðurnar. Niðurstöðurnar benda til þess að æskilegt sé að fara í hraðalækkandi aðgerðir samhliða lækkun hámarkshraða með skiltum.

Skjámynd 2026-10-28 090614
Höfundur

Valur Elli Valsson og Berglind Hallgrímsdóttir

Skrá

rsk_1800_1069_raunhradabreytingar-med-laekkun-hamarkshrada-tomtom-greining.pdf

Sækja skrá