Ritgerðin fjallar um hvernig búsetuóskir og val á ferðamáta hafa áhrif á ákvörðun fólks um að flytja frá höfuðborgarsvæðinu til nærliggjandi þéttbýlisstaða innan vinnusóknarsvæðis þess. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvaða búsetuóskir skipta mestu máli við ákvörðun um flutning og hvernig val á ferðamáta til og frá vinnu hefur áhrif á þá ákvörðun. Byggt var á fræðilegum viðmiðum úr rannsóknum í Norður-Evrópu um efnahagslega, félagslega og samgöngutengda þætti, auk búsetugæða.

Margrét Þóra Sæmundsdóttir