PDF · Útgáfa NR-1800-1078 — mars 2026
Stiku­sjá – Áfanga­skýrsla

Í þessu verkefni er rannsökuð ratsjá fyrir vegstikur sem er sérstaklega hönnuð til að aðstoða ökumenn að aka í erfiðum aðstæðum vegna snjóbyls, rigninga, þoku eða gosösku. Til að uppfylla þetta markmið er lögð fram hönnun á samræmandi 10,5 GHz FMCW ratsjá. Á Íslandi eru um 350.000 vegstikur um allt land og með því að bæta sérhönnuðu endurskini á þær eykst endurspeglunarstyrkurinn sem getur hjálpað við að ákvarða staðsetningu þeirra, og þar af leiðandi, vegsins. Valdir eru íhlutir sem notaðir verða til að búa til frumgerð á seinni stigum.

Skjámynd 2026-07-02 125559
Höfundur

Sævar Þór Jónasson

Skrá

nr_1800_1078_stikusja-afangaskyrsla.pdf

Sækja skrá