PDF · Útgáfa 978-9935-460-09-7 — ágúst 2006
Víkur­skarð – Umferðar­könn­un 21., 23.júlí, 13. og 15. októ­ber 2005.

Fimmtudagana 21. júlí, 13. október 2005, laugardagana 23. júlí og 15. október 2005 var umferð könnuð á Hringvegi um Víkurskarð, en sá staður tilheyrir Norðaustursvæði Vegagerðarinnar. Könnunin stóð yfir frá kl. 0800 – 2300 alla dagana.

Könnunarstaðurinn (sjá mynd 1) var uppi á miðju Víkurskarði n.t.t. við bílastæði efst í skarðinu.

Tilgangur með könnuninni er að afla upplýsinga um umferð á milli þéttbýlisstaða á Norðurlandi eystra, einnig gætu niðurstöður nýst við undirbúning hugsanlegra jarðganga í gegnum Vaðlaheiði.

Framkvæmd könnunarinnar var með þeim hætti að allar bifreiðir, á leið um könnunarstaðinn voru stöðvaðar og bílstjórar spurðir nokkurra spurninga (sjá spurningaeyðubl. í viðauka nr. 1). Vegagerðin, umferðardeild og björgunarsveitin Súlur á Akureyri sáu um að framkvæma umferðarkönnunina, alls 35 manns.

Víkurskarð - Umferðarkönnun
Höfundur

Friðleifur Ingi Brynjarsson

Skrá

umferdarkonnun_vikurskard.pdf

Sækja skrá
Breytingar frá fyrri útgáfu

Ný útgáfa 26.09.2006. gerðar hafa verið minniháttar lagfæringar á skýrslunni.

Víkurskarð – Umferðarkönnun 21., 23.júlí, 13. og 15. október 2005.