Markmið verkefnisins var að skoða aðferðir og verklag annarra landa varðandi snjósöfnun og getur haft áhrif á bæði hönnun gatna og skipulag og því æskilegt að taka mið af því strax á skipulagsstigi. Snjóruðningar í köntum vega og gatna geta dregið úr vegsýn og skapað hindranir fyrir gangandi, hjólandi og akandi vegfarendur. Mikilvægt er að hæð og staðsetning þeirra sé innan viðmiða og að þeir séu fjarlægðir eða jafnaðir á lykilstöðum til að tryggja góða sjónlengd, öruggar þveranir og fullnægjandi afrennsli. Þá þarf að gera ráð fyrir rými undir snjóruðninga strax á skipulags- og hönnunarstigi, svo snjóhreinsun sé framkvæmanleg og skilvirk.

Atli Freyr Þorvaldsson, Daði Baldur Ottósson, Berglind Hallgrímsdóttir
Berglind Hallgrímsdóttir, Ólafur Sveinn Haraldsson