PDF
Ástans spennukapla í steypt­um brúm

Í skýrslunni eru birtar frekari niðurstöður mælinga á klór í yfirbyggingum brúa. Skýrslan er framhald á klórmælingum síðasta árs. Einnig mælingar
á steypuhulu á þeim stöðum sem sýni til klórmælinga voru tekin. Valdar voru eingöngu brýr sem standa í sjávarumhverfi þar af tvær úr fyrri rannsókn. Í fyrri rannsókn reyndist ekki nægilegt að taka sýni úr ystu 30 mm steypunnar þannig að nú voru tekin sýni úr ystu 50 mm.
Niðurstöður sýna að klór er mikið í bitahliðum á brúm sem standa í sjávarumhverfi. Klór er meiri á þeim bitahliðum sem eru í skjóli fyrir úrkomu. Lagt er til að fylgjast með brúm sem eru sérstaklega útsettar fyrir sjávarseltu. Gerð er tilraun til að flokka íslenskar uppspenntar brýr í áhættuflokka
eftir gerð burðarvirkis og viðkvæmum deilum.

Skjámynd 2026-10-19 112251
Höfundur

Baldvin Einarsson

Skrá

nr_1800_366_astand-spennikapla-i-steyptum-brum-afangaskyrsla-5.pdf

Sækja skrá