Vegagerðin býður hér með út útlögn malbiks og blettaviðgerðir á malbikuðum slitlögum á vegum á Vestursvæði árið 2026. Allar framkvæmdir í þessu útboði eru á Vesturlandi.
• Malbik 45/60 mm | 30.352 m2 |
• Fræsing | 10.500 m2 |
• Hjólfarafyllingar | 230 m2 |
• Yfirborðsmerkingar (merkingalengd) | 13.440 m |
• Malbiksviðgerðir | 800 m2 |
• Hvinrendur | 920 m |
Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 30. mars 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. apríl 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð
Athygli bjóðenda er vakin á því að talsverðar breytingar eru á útboðsgögnunum frá fyrra ári.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Colas Ísland ehf., Hafnarfirði | 251.325.000 | 110,8 | 4.770.950 |
Malbikunarstöðin Höfði ehf., Hafnarfirði | 246.554.050 | 108,7 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 226.874.100 | 100,0 | 19.679.950 |