Vegagerðin býður hér með út yfirlagnir með klæðingu á vegum á Vestursvæði árið 2026. Verkefnið felst í að leggja einfalt lag af klæðingu með þjálbiki yfir eldra slitlag.
Helstu magntölur eru:
Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 10. mars 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. mars 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Athygli bjóðenda er vakin á því að talsverðar breytingar eru á útboðsgögnunum frá fyrra ári.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Áætlaður verktakakostnaður | 161.695.500 | 100,0 | 26.810.500 |
Klæðning ehf., Sauðárkróki | 155.350.000 | 96,1 | 20.465.000 |
Þjótandi ehf., Hellu | 139.305.000 | 86,2 | 4.420.000 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 134.885.000 | 83,4 | 0 |