Vegagerðin býður hér með út útlögn malbiks á Suðursvæði, Suðurland 2026. Allar framkvæmdir í þessu útboði eru á Suðurlandi.
Verkið felst í endurnýjun slitlags á völdum köflum á stofnvegakerfi Vegagerðarinnar á Suðurlandi. Í þessu útboði teljast þeir vegkaflar sem eru austan Nesjavallaleiðar (435), austan Vesturlandsvegar (1-f4), austan kaflaskila (36-12 og 36-11) á Þingvallavegi (36) (við Hrafnhólaveg(4365) og austan gatnamóta Krýsuvíkurvegar og Suðurstrandavegar (427) sem hluti af svæðinu.
Helstu magntölur eru áætlaðar:
Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 17. mars 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 mánudaginn 13. apríl 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Athygli bjóðenda er vakin á því að talsverðar breytingar eru á útboðsgögnunum frá fyrra ári.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Malbikunarstöðin Höfði ehf., Hafnarfirði | 359.120.350 | 119,6 | 57.230.330 |
Áætlaður verktakakostnaður | 300.370.800 | 100,0 | 1.519.220 |
Colas Ísland ehf., Hafnarfirði | 301.890.020 | 100,5 | 0 |