Vegagerðin býður út útlögn malbiks á Suðursvæði, Reykjanes 2026 2026. Allar framkvæmdir í þessu útboði eru á Reykjanesi.
Verkið felst í endurnýjun slitlags á völdum köflum á stofnvegakerfi Vegagerðarinnar á Reykjanesi. Í þessu útboði teljast þeir vegkaflar sem eru vestar en Krýsuvíkurvegur (42-01) að Krýsuvíkur veg meðtöldum, norðan og vestan við gatnamót Krýsuvíkurvegar (42) og Suðurstrandavegar (427).
Helstu magntölur eru áætlaðar:
Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 17. mars 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 15. apríl 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Athygli bjóðenda er vakin á því að talsverðar breytingar eru á útboðsgögnunum frá fyrra ári.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Colas Ísland ehf., Hafnarfirði | 250.834.115 | 103,6 | 14.494.515 |
Áætlaður verktakakostnaður | 242.112.265 | 100,0 | 5.772.665 |
Malbikunarstöðin Höfði ehf., Hafnarfirði | 236.339.600 | 97,6 | 0 |