Útboðsnúmer 26-056
Yfir­lagn­ir á Suður­svæði 2026, Malbik Höfuð­borg­in

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst mars 2026
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

17. mars 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út útlögn malbiks á Suðursvæði, Suðurland 2026. Allar framkvæmdir í þessu útboði eru á Höfuðborgarsvæðinu.

Verkið felst í endurnýjun slitlags á völdum köflum á stofnæðakerfi Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Í þessu útboði er höfuðborgarsvæðið afmarkað af Krýsuvíkurvegi (42-01) í vestri, af Nesjavallaleið (435-00) og Þingvallavegi (36-11) (að Hrafnhólavegi 4365) í austri og að hringtorgi norðan Hvalfjarðarganga (1-g1) í norðri.

Helstu magntölur eru áætlaðar:

  • Yfirlagnir 75.250 m2
  • Fræsing 62.075 m2
  • Hjólfarafyllingar/afrétting 31.900 m2
  • Yfirborðsmerkingar (merkingarlengd): 16.140 m
  • Hvinrendur 2.660 m

Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 17. mars 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. apríl 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Athygli bjóðenda er vakin á því að talsverðar breytingar eru á útboðsgögnunum frá fyrra ári.