Vegagerðin býður hér með út verkið „Vík í Mýrdal, flóðvörn 2026“. Um er að ræða gerð um 900 m langs flóðvarnargarðs, frá fjárhúsavegi að Kötlugarði austan við þéttbýlið í Vík.
Helstu magntölur:
Möl úr Múlakvísl um 10.000 m3.
Verki skal að fullu lokið 1. mars 2027.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með miðvikudeginum 21. október 2026.
Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 3. nóvember 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.