Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, á Austursvæði.
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 30.000 km á ári. |
Gildistími samnings er þrjú ár, þ.e. veturna 2026-2029. Heimilt er að framlengja gildistíma samnings í allt að tvö ár, eitt eða tvö ár í senn
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 5. júní 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. júní 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.