Útboðsnúmer 26-097
Vetrar­þjón­usta 2026-2029, Breið­dals­vík – Djúpi­vogur (Hraðút­boð)

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst júní 2026
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

5. júní 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, á Austursvæði.

Helstu magntölur fyrir hvert tímabil eru:
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 10.500 km á ári.

Gildistími samnings er þrjú ár, þ.e. veturna 2026-2029. Heimilt er að framlengja gildistíma samnings í allt að tvö ár, eitt eða tvö ár í senn

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með föstudeginum 5. júní 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. júní 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.