Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið í Uppsveitum Árnessýslu.
Akstur vörubifreiða á þjónustuleiðum er áætlaður 60.000 km á ári. |
Gildistími samnings er þrjú ár, þ.e. veturna 2025-2026, 2026-2027 og 2027-2028. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár með samþykki beggja aðila, eitt ár í senn,
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 7. mars 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 8. apríl 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Áætlaður verktakakostnaður | 368.460.000 | 100,0 | 137.640.000 |
Stórverk ehf., Þorlákshöfn | 340.560.000 | 92,4 | 109.740.000 |
Þjótandi ehf., Hellu | 316.196.400 | 85,8 | 85.376.400 |
Heflun ehf., Lyngholti | 230.820.000 | 62,6 | 0 |