Útboðsnúmer 25-039
Vetrar­þjón­usta 2025-2028, Selfoss – Norð­linga­holt

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst febrúar 2025
    • 2Opnun tilboða apríl 2025
    • 3Samningum lokið

28. febrúar 2025Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, á Suðursvæði.

Helstu magntölur fyrir hvert tímabil eru:
Akstur vörubifreiða á þjónustuleiðum er áætlaður 186.000 km á ári

Gildistími samnings er þrjú ár, þ.e. veturna 2025-2026, 2026-2027 og 2027-2028. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár með samþykki beggja aðila, eitt ár í senn,

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með föstudeginum 28. febrúar 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 1. apríl 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.


1. apríl 2025Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Borgarverk ehf., Borgarnesi
1.097.208.354
103,8
268.068.354
Áætlaður verktakakostnaður
1.056.840.000
100,0
227.700.000
Þjótandi ehf., Hellu
1.040.688.120
98,5
211.548.120
Óskatak ehf., Kópavogi
838.928.571
79,4
9.788.571
Bjartey ehf., Reykjavík
829.140.000
78,5
0