Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, á Vestursvæði.
Akstur vörubifreiða á þjónustuleiðum er áætlaður 74.000 km á ári |
Gildistími samnings er þrjú ár, þ.e. veturna 2025-2026, 2026-2027 og 2027-2028. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár með samþykki beggja aðila, eitt ár í senn,
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 21. mars 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. apríl 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
---|---|---|---|
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 434.963.461 | 101,3 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 429.240.000 | 100,0 | 5.723.461 |