Útboðsnúmer 26-152
Vest­manna­eyjar – Gjábakki, uppsetn­ing fend­era 2026

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst nóvember 2026
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

24. nóvember 2026Útboðsauglýsing

Hafnarstjórn Vestmannaeyja óskar eftir tilboðum í verkið „Vestmannaeyjar – Gjábakki, Uppsetning fendera 2026“.

Helstu verkþættir eru:

  • Setja upp 21 stk. af lóðréttum DD-fenderum
  • Setja upp 17 stk. af láréttum DD-fenderum
  • Setja upp 1 stk. af láréttum V-fender

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. mars 2027.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með þriðjudeginum 24. nóvember 2026.

Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 8. desember 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.