Hafnarstjórn Vestmannaeyjabæjar óskar eftir tilboðum í verkið „Vestmannaeyjar – Gjábakki, þekja og lagnir 2026“.
Steypa 2 stk. stöpla undir ljósamöstur |
Steypa 11,54 m stoðvegg |
Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn og koma fyrir rafmagnskápum |
Leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunni |
Leggja niðurfallslagnir og koma fyrir niðurföllum |
Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna síðan undir steypu |
Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 2.035 m² |
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. september 2026.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með mánudeginum 23. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. mars 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsupphæð.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
HS Vélaverk ehf, Vestmannaeyjar | 105.562.719 | 123,2 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 85.691.345 | 100,0 | 19.871.374 |