Útboðsnúmer 25-088
Þurr­fræs­ing á Norður­svæði 2025, Hring­vegur, við Blöndu­hlíð í Skaga­firði

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst júlí 2025
    • 2Opnun tilboða júlí 2025
    • 3Samningum lokið

Þurrfræsing á Norðursvæði 2025, Hringvegur, við Blönduhlíð í Skagafirði

8. júlí 2025Útboðsauglýsing

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í þurrfræsingu  og tvöfalda klæðingu á vegum á Norðursvæði 2025.

Um er að ræða annars vegar fræsingu á núverandi slitlagi/burðarlagi, akstur og útlögn á burðarlagi og tvöfalda klæðingu. Samhliða fræsingu skal jafna hæðarlegu og þverhalla vegarins. Verkkaupi leggur til burðarlags og klæðningarefni. Ofangreindir vegkaflar eru staðsettir í Blönduhlíð Skagafirði.

Áætlaðar magntölur:
Flutningur steinefnis , burðarlag
13.000 m³*km
Þurrfræsing
22.200 m2
Flutningur klæðningarefnis 
3.900 m³*km
Tvöföld klæðing
22.200 m2

Verklok eru 1. september 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með þriðjudeginum 8. júlí 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júlí 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.


22. júlí 2025Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Klæðning ehf., Sauðárkróki
72.564.380
125,8
28.283.026
Áætlaður verktakakostnaður
57.694.714
100,0
13.413.360
Borgarverk ehf., Borgarnesi
44.281.354
76,8
0