Vegagerðin býður hér með út styrkingu, breikkun og klæðingu Þorlákshafnarvegar (38-01), frá Læk í Ölfusi að Þrengslavegamótum. Verkið felst í styrkingu, breikkun og klæðingu bundins slitlags vegar sem er nú að jafnaði um 7 m breiður, í 8,0 m breiðan veg með 7,8 m breiðu bundnu slitlagi og 2 x 10 cm breiðum malar öxlum. Framkvæmdarkaflinn sem um ræðir er um 3,0 km að lengd.
Skeringar | 5.802 m3 |
Fláafleygar | 3.723 m3 |
Fyllingar | 3.161 m3 |
Styrktarlag 0/63 | 9.033 m3 |
Burðarlag 0/22 | 5.408 m3 |
Tvöföld klæðing | 24.151 m2 |
Fræsing klæðingar | 20.400 m2 |
Frágangur fláa | 28.244 m2 |
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. sptember2026.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með mánudeginum 23. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. mars 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsupphæð.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Þróttur ehf., Akranes | 214.552.743 | 106,7 | 59.875.801 |
Áætlaður verktakakostnaður | 201.011.976 | 100,0 | 46.335.034 |
Stórverk ehf., Þorlákshöfn | 173.092.950 | 86,1 | 18.416.008 |
Ellert Skúlason ehf., Reykjanesbæ | 168.077.400 | 83,6 | 13.400.458 |
Óskatak ehf., Kópavogi | 163.834.940 | 81,5 | 9.157.998 |
Þjótandi ehf., Hellu | 154.676.942 | 76,9 | 0 |