Vegagerðin býður hér með út þjónustu og viðhald veglýsingar á Reykjanesi. Um er að ræða almenna þjónustu og viðhald á veglýsingarkerfinu, niðurtekt og uppsetningu lampa, stauraskipti, stauraréttingar og fleira.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar, tvisvar sinnum, til 1 árs í senn.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með miðvikudeginum 23. september 2026.
Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. nóvember 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Ellert Skúlason ehf., Reykjanesbæ | 202.471.700 | 312,1 | 138.485.663 |
Rafal ehf., Hafnarfirði | 201.746.288 | 310,9 | 137.760.251 |
Nortek ehf., Reykjavík | 87.901.500 | 135,5 | 23.915.463 |
Rafvirki og pípari fyrir þig ehf., Garðabær | 87.186.156 | 134,4 | 23.200.119 |
Áætlaður verktakakostnaður | 64.882.000 | 100,0 | 895.963 |
Bergraf ehf., Reykjanesbæ | 63.986.037 | 98,6 | 0 |