Útboðsnúmer 26-132
Þjón­usta og viðhald veglýs­ingar á Reykja­nesi

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst september 2026
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

23. september 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út þjónustu og viðhald veglýsingar á Reykjanesi.  Um er að ræða almenna þjónustu og viðhald á veglýsingarkerfinu, niðurtekt og uppsetningu lampa, stauraskipti, stauraréttingar og fleira.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar, tvisvar sinnum, til 1 árs í senn.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með miðvikudeginum 23. september 2026.

Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. október 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.