Útboðsnúmer 26-133
Þjón­usta og viðhald veglýs­ingar á höfuð­borgar­svæð­inu

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst september 2026
    • 2Opnun tilboða nóvember 2026
    • 3Samningum lokið

23. september 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út þjónustu og viðhald veglýsingar á höfuðborgarsvæðinu.  Um er að ræða almenna þjónustu og viðhald á veglýsingarkerfinu, niðurtekt og uppsetningu lampa, stauraskipti, stauraréttingar og fleira.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar, tvisvar sinnum, til 1 árs í senn.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með miðvikudeginum 23. september 2026.

Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. nóvember 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.


17. nóvember 2026Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Rafvirki og pípari fyrir þig ehf., Garðabær
287.597.064
146,7
110.631.864
Pávers ehf., Reykjavík
287.203.080
146,5
110.237.880
Rafal ehf., Hafnarfirði
273.192.701
139,3
96.227.501
Nortek ehf., Reykjavík
269.304.000
137,4
92.338.800
Áætlaður verktakakostnaður
196.060.000
100,0
19.094.800
Bergraf ehf., Reykjanesbæ
193.946.352
98,9
16.981.152
Ljóstvistar ehf., Reykjavík
176.965.200
90,3
0