Útboðsnúmer 26-019
Stykk­ishólm­svegur (58): Þing­valla­vegur – Stykk­ishólm­ur, endur­bætur

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst febrúar 2026
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

Stykkishólmsvegur (58): Þingvallavegur – Stykkishólmur, endurbætur

10. febrúar 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út endurbyggingu á um 4,0 km kafla á Stykkishólmsvegi. Innifalið í endurbyggingunni er  gerð fyllinga, útlögn styrktar- og burðarlags, tvöföld klæðing ásamt niðurlögn ræsa og víravegrið, grjótvörn og vinnsla efnis í burðar- og styrktarlög.

Helstu magntölur eru áætlaðar:
Fyllingar og fláafleygar
16.000 m³
Styrktarlag
11.680 m³
Burðarlag neðra lag
4.100 m³
Burðarlag neðra lag
2.555 m³
Þurrfræsing
32.000 m2
Tvöföld klæðing
28.292 m2

Verkinu skal að fullu lokið fyrir  15. september 2026.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með þriðjudeginum 10. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. febrúar 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsupphæð.