Útboðsnúmer 26-046
Steinefni fyrir Austur­svæði 2026, (Mið­austur­land I)

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst febrúar 2026
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

27. febrúar 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út  öflun og/eða framleiðslu á steinefni fyrir Austursvæði (Miðausturland I)

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í tvö ár frá töku tilboðs með heimild til framlengingar í 1 x 1 ár.

Um er að ræða útboð sem tekur til öflunar steinefnis og skal efnið afgreitt haugsett innan svæðis sem fram kemur í lið 1.5.10  í útboðsgögnum fyrir 10. júní 2026. Seljandi skal útvega afhendingarstaði. Seljandi skal slétta og þjappa botn fyrir haugsetningu efnisins og fá botninn úttekinn og samþykktan af fulltrúa verkkaupa.

Efnisflokkar og áætlað magn -20% og + 40%:

Efnisflokkur Magn m3
Steinefni í hálkuvarnarsand 2/6 900
Steinefni í klæðingar 6/8 500
Steinefni í klæðingar  8/11  600
Steinefni í klæðingar 8/14 1400
Steinefni í klæðingar 11/14 300
Samtals 3700

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 27. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. mars 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.