Snæfellsnesvegur (54), Brúarhraun – Hraunsmúli, endurbætur
Vegagerðin býður hér með út endurbyggingu á um 6 km kafla á Snæfellsnesvegi. Innifalið í endurbyggingunni er gerð fyllinga, útlögn styrktar- og burðarlags, útlögn tvöfaldrar klæðingar ásamt lögn ræsa og vinnslu og efnisútvegun efnis í burðar- og styrkarlög.
Þurrfræsing | 48.400 m2 |
Fyllingar og fláafleygar | 30.900 m³ |
Styrktarlag | 23.670 m³ |
Burðarlag neðra lag | 6.510 m³ |
Burðarlag efra lag | 4.500 m³ |
Tvöföld klæðing | 51.200 m2 |
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. september 2026.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með þriðjudeginum 3. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. febrúar 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsupphæð.