Snæfellsbær – Sjóvörn við Útnesveg
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvörn við Útnesveg. Verkið felst í gerð sjóvarnar meðfram Útnesveg nr 574-07, vestan við Ólafsvík. Um 50 m endurbygging af núverandi grjótfláa og 330 m lenging, samtals um 380 m.
Helstu magntölur:
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. September 2026.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með föstudeginum 6. febrúar 2026.
Tilboði skal skila rafrænt í útboðskerfinu TendSign fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. febrúar 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.