Skagastrandarhöfn óskar eftir tilboðum í verkið „Skagaströnd – Miðgarður, endurbygging milli Ásgarðs“.
Brjóta og fjarlægja gamla þekju, um 370 m2. |
Jarðvinna og steypa 46 m landvegg |
Reka niður 16 bryggjustaura úr harðviði. |
Smíði á um 207 m² af bryggju úr harðviði. |
Uppsetning á 30 stk DD250 þybbum á bryggju. |
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. október 2026.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með þriðjudeginum 16. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 3. mars 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsupphæð.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Úlfsstaðir ehf., Reykjavík | 83.845.898 | 103,4 | 19.781.450 |
Áætlaður verktakakostnaður | 81.098.000 | 100,0 | 17.033.552 |
Árni Helgason ehf., Ólafsfirði | 64.064.448 | 79,0 | 0 |