Vegagerðin óskar eftir tilboðum í festun burðarlags með sementi, útlögn burðarlags og tvöfalda klæðingu á vegum á Norðursvæði 2026.
Helstu magntölur eru:
Verklok eru 15. júlí 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 9. mars 2026.
Tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. mars 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Áætlaður verktakakostnaður | 147.373.707 | 100,0 | 11.236.407 |
Klæðning ehf., Sauðárkróki | 143.629.870 | 97,5 | 7.492.570 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 136.137.300 | 92,4 | 0 |