Sandgerðishöfn – Suðurgarður, styrking 2025
Sandgerðishöfn óskar eftir tilboðum í verkið „Sandgerðishöfn – Suðurgarður, styrking 2025.” Um er að ræða hækkun og styrkingu á um 100 m kafla á skjólgarði í Sandgerðishöfn.
Áætlað magn af grjóti og sprengdum kjarna er um 2.500 m³.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. mars 2026.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með fimmtudeginum 2. október 2025.
Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. október 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Ellert Skúlason ehf., Reykjanesbæ | 18.958.200 | 110,6 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 17.143.800 | 100,0 | 1.814.400 |