Útboðsnúmer 26-084
Önundar­holts­vegur (311), Gaul­verja­bæjar­vegur – Vill­inga­holts­vegur

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst maí 2026
    • 2Opnun tilboða júní 2026
    • 3Samningum lokið

18. maí 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út endurbyggingu á 4,9 km Önundarholtsvegar og útlögn klæðingar á þann veg og aðliggjandi tengingar.

Helstu magntölur eru:

  • Fyllingar 11.731 m3
  • Fláafleygar 8.265 m3
  • Styrktarlag 14.154 m3
  • Burðarlag 0/22 7.921 m3
  • Tvöföld klæðing 34.934 m2
  • Frágangur fláa 1.208 m2

Útlögn klæðingar skal lokið fyrir 15. september 2026.

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 30. september 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 18. maí 2026.

Tilboðum er skilað rafrænt í  útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 föstudaginn 5. júní 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.


5. júní 2026Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Karína ehf., Kópavogi
308.554.131
109,3
86.154.946
Áætlaður verktakakostnaður
282.187.546
100,0
59.788.361
Óskatak ehf., Kópavogi
222.399.185
78,8
0