Útboðsnúmer 26-081
Ólafs­vík – Norður­bakki, þekja og lagn­ir 2026

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst júlí 2026
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

6. júlí 2026Útboðsauglýsing

Hafnarstjórn Snæfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið Ólafsvík – Norðurbakki. Þekja og lagnir 2026.

Helstu verkþættir eru:

  • Brjóta og fjarlæga gamla þekju og malbik.
  • Steypa rafbúnaðarhús og undirstaða fyrir ljósamöstur og polla,
  • Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn og koma fyrir rafmagnskápum,
  • Leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum og brunahana,
  • Gróf- og fínjafna undir steypu,
  • Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 2.200 m²,

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. desember 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 6. júlí 2026.

Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  21. júlí 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.