Laugarvatnsvegur (37), Laugarvatn-Hjálmsstaðir, styrking og malbik
Vegagerðin býður hér með út styrkingu og malbikun 3,0 km kafla á Laugarvatnsvegi, frá Laugarvatni að Hjálmsstöðum. Verkið felst í að, jarðvegsskipta fyrir breikkun í köntum, fræsa upp núverandi slitlagi á veginum, jafna því út og breikka veg lítilsháttar og keyra að jafnaði 20 cm þykku burðarlagi yfir, endurnýjun ræsa og malbika svo yfir.
Skeringar | 3.094 m3 |
Lögn ræsa | 30 m |
Fláafleygar | 1.522 m3 |
Styrktarlag 0/63 | 2.175 m3 |
Burðarlag 0/45 | 4.050 m3 |
Slitlagsmalbik á möl 6 cm | 23.471 m2 |
Fræsing slitlags | 22.386 m2 |
Frágangur fláa | 16.381 m2 |
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. ágúst 2026.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með mánudeginum 23. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. mars 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og heildartilboðsupphæð.