Útboðsnúmer 26-128
Jökul­dals­vegur (923), Langa­gerði – Hákonar­stað­ir, eftir­lit og ráðgjöf (Hraðút­boð)

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst ágúst 2026
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

14. ágúst 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út eftirlit og ráðgjöf með framkvæmdaverkinu  „Jökuldalsvegur (923), Langagerði – Hákonarstaðir“. Framkvæmdaverkið felur í sér  endurbyggingu Jökuldalsvegar á um 4,5 km kafla, frá Langagerði að Hákonarstöðum og er áætlað að framkvæmdinni ljúki að fullu 1. október 2027. Framkvæmdaskýrsla og afhending gagna ráðgjafa um verkið sem heild skal liggja fyrir eigi síðar en 1 mánuði eftir að uppgjöri við verktaka lýkur.

Val bjóðenda í eftirlit og ráðgjöf með framkvæmdaverkinu fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðenda og verðtilboð.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 14. ágúst 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. ágúst 2026.

Ekki verða haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þann 28. ágúst 2026 verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.